Blikksmíði, blikksmíði, blikksmíði.

Blikksmiðja Guðmundar sinnir allri almennri blikksmíði en takmarkar starfsemi sína ekki að neinu leyti þegar kemur að því að leysa vandamál viðskiptavina.

Viðskiptavinir í hvers kyns nýframkvæmdum og viðhaldi, stórum sem smáum, geta leitað til okkar. Við bjóðum fagleg vinnubrögð og gegnheilar lausnir á þeim verkefnum sem okkur er treyst fyrir. Reynsla okkar og vönduð vinnubrögð mynda saman góða vöru og ánægða viðskiptavini.

Markmið okkar er að þjónusta einstaklinga og smá, jafn sem stór, fyritæki. Við leitum stöðugt að nýjum tækifærum og bjóðum alla velkomna að nýta sér okkar þjónustu.

Með stöðugri endurmenntun og þjálfun starfsmanna tryggjum við aukna þekkingu á þeim sviðum blikksmíðinnar sem fylgja tækninýjungum. Starfsmenn okkar eru þjálfaðir í að bjóða bestu og hagkvæmustu lausnir sem völ er á hverju sinni, sem skilar sér í auknum endingatíma og minni viðhaldskostnaði.

Aluminium waves